|
Við hjá Gosbrunnum ehf bjóðum upp á hönnun á ykkar hugmynd að vatnasvæði og í framhaldi af því veitum við ráðgjöf við val á búnaði til að ná fram þeim áhrifum.
Frá stofnun fyrirtækisins
höfum við boðið upp á þessa þjónustu
og hafa fjölmargir aðilar, bæði
fyrirtæki og stofnanir sem og einstaklingar,
nýtt sér þessa þjónustu.
Hingað til höfum við fundið lausnir á mörgum
mögulegum og ómögulegum útfærslum
og hafa margar þeirra verið mjög
frumlegar og skemmtilegar.
Í raun er það þannig
að það er allt hægt, það eina
sem takmarkar hugmyndina er áætlað fjármagn. Í flestum
tillfellum er mögulegt að bjóða
lausn sem fellur innan þess fjárhagslega
ramma sem viðskiptavinurinn gengur út
með.
Þau fyrirtæki sem við verslum við bjóða samanlagt upp á heildarlausn á flestum þeim verkefnum sem við höfum staðið fyrir.
Sem dæmi um hönnunarferli má taka þennan garð.
 |
Viðskiptavinurinn óskaði
eftir nokkrum útfærslum
fyrir þennan garð. Þetta
var ræktunarsvæði fyrir
kartöflur sem ekki átti
að nýta lengur. Hann
langaði að fá aðra
möguleika en gras fyrir svæðið og
tjörn var einn valkostur.
|
|
Hér gefur að líta þrjár tillögur sem við buðum honum.
Tillaga 1. Í þessari
tillögu var gengið út
frá litlum læk sem yrði
staðsettur á smá hækkun,
gerð úr þeim jarðvegi
sem félli til við uppgröft
tjarnarsvæðisins.
Hér er gert ráð fyrir
tjarnardúk og dælu með slöngu
sem tengist við lækjareininguna.
Lækjareiningin sem um ræðir
er úr náttúrulegum
glertrefjum sem veðrast vel og aðlagast
vel svæðinu. |
|
| Tillaga
2. Hér er gert ráð fyrir
lágum uppsprettum sem vatnið rennur úr á nokkrum
stöðum. Þetta er ekki
eins hátt og lækurinn og það ber
minna á vatnsrennslinu. Í kringum
uppsretturnar er mögulegt að setja
gróður t.d. mosa eða grastegundir
sem gefa svæðinu náttúrulegra
yfirbragð. Það er sama útfærsla á dúknum
og dælubúnaðinum. |
|
|
Tillaga 3. Í þessari útfærslu
er um að ræða einfalda
gosbrunnadælu með dreyfispíss.
Dælan er beint undir dreyfispíssnum. Þetta
er einfaldasta og ódýrasta útfærslan.
Dúkurinn er eins og í dælunum
hér að ofan.
Þessi viðskiptavinur tók tillögu 1 fyrir sitt svæði og gerði tjörnina út frá því. |
|
Á höfuðborgarsvæðinu
bjóðum við viðskiptavinum
okkar að við komum í heimsókn
og skoðum aðstæður. Við tökum
myndir og punktum niður ykkar óskir. Í framhaldi
af því útfærum við nokkrar
tillögur með verði sem þið getið svo íhugað og
skoðað hvort það sé í samræmi
við ykkar óskir.
Þið getið sent okkur fyrirspurn um vörur eða bæklinga með því að smella hér.
Ef þið eruð að leita eftir upplýsingum eða fræðslu um vörurnar þá getið þið nálgast allar helstu upplýsingar á hönnunar og þjónustuhluta síðunnar með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
 |