Gosbrunnar.is - allt fyrir tjarnargerð, gosbrunna og vatnsflæði.

Malar

Gosbrunnur
Vatnsflæði

Fallegur ílangur lækur.

Um vefsvæðið

Vefsíðunni www.gosbrunnar.is má líkja við búðarglugga verslana. Á síðunni geta viðskiptavinir skoðað vöruúrvalið, náð sér í gagnlegar upplýsingar um vörurnar eða vafrað um og skoða fallegar myndir af fallegum vörum.

Vefsíðan er ekki eiginleg netverslun sem slík, en engu að síður þá getur fólk pantað vörur í gegnum vefsíðuna.

Ef þú finnur það sem þú leitar eftir þá smellir þú á tengil við vöruna sem þér líst á. Þá kemur upp pantanaeyðublað sem þú fyllir út eftir því sem við á og sendir okkur. Við munum svo hafa samband við þig og ganga frá viðskiptunum.

Eins er hægt að panta vörur í gegnum netfangið: gosbrunnar@gosbrunnar.is.

Eða í gegnum síma: 695-4220.

Við bjóðum fólki einnig ráðgjöf um val á búnaði fyrir tiltekin verkefni eða hugmynd. Oft á tíðum þegar hugmynd eða ósk um ákveðin áhrif koma upp þá er ekki alltaf augljóst hvernig á að útfæra hana. Við bjóðum viðskiptavinum okkar að senda okkur t.d. mynd eða teikningu af svæðinu sem við svo aðstoðum við að útfæra eða lagfæra eftir því sem við á. Á höfuðborgarsvæðinu bjóðum við viðskiptavinum okkar að við komum í heimsókn til að skoða aðstæður. Við tökum myndir og punktum niður ykkar óskir. Í framhaldi af því útfærum við nokkrar tillögur með verði sem þið getið svo íhugað og skoðað hvort það sé í samræmi við ykkar óskir.

Þið getið líka sent okkur fyrirspurn um vörur eða bæklinga með því að smella hér.

Ef þið eruð að leita eftir upplýsingum eða fræðslu um vörurnar þá getið þið nálgast allar helstu upplýsingar á hönnunar og þjónustuhluta síðunnar með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

 

Hönnun, ráðgjöf og þjónusta.

 

Gosbrunnar - Lager og vöruafgreiðsla Malarhöfða 8 - sími 695 4220 - gosbrunnar@gosbrunnar.is