|
Vatn er skemmtilegt efni.
Vatn getur verið fallegt og um leið slakandi.
Gleðilegt og um leið hressandi.
Eins hefur vatn gifurlegt skemmtigildi og
er það markmið Gosbrunna
að bjóða viðskiptavinum
okkar upp á heildarlausnir á öllum þáttum
sem varða hreyfingu vatns og umhverfi þess.
Gosbrunnar bjóða
uppá gosbunnadælur og tengdan
búnað frá þýska
fyrirtækinu OASE, sem
er leiðandi framleiðandi á sínu
sviði á heimsvísu. Einnig
bjóðum við lækjareiningar,
niðurgrafin vatnsforðabúr og
tilbúnar vatnseiningar úr stáli,
steini eða glertrefjum til að gera
garðinn þinn fallegan og spennandi.
Samhliða vatnsvörunum þá býður fyrirtækið uppá lýsingu fyrir garðinn eða pallinn, skrautvörur í kringum tjörnina eða garðinn og garðstyttur og bekki til að fullkomna draumasvæðið þitt.
Við höfum nýlega hafið samstarf við Hollenskan heildsöluaðila sem býður upp á ALLT sem þarf fyrir vatnasvæðið þitt, sérstaklega sérhæfðari hreinsi og dælubúnað.
Staðsetning
Verslun okkar í Askalind 2 var lokað í október 2010 vegna ástands í þjóðfélaginu. Við höfum dregið saman seglin og opnað vöruafgreiðslu og lager að Malarhöfða 8 í Reykjavík. Lagerinn er staðsettur fyrir aftan bílaumboðið Ingvar Helgason, við hliðina á Steypustöðinni.
Um Gosbrunna
Gosbrunnar ehf var stofnað í mars
2005 eftir að hugmyndin hafði vaknað um
að stofna fyrirtæki sem sérhæfir
sig í öllu sem tengist tjarnargerð,
gosbrunnum og vatnsflæði.
Annar stofnandi og eigandi fyrirtækisins,
Svavar Björgvinsson, hefur starfað við tjarnarvörur
og tengdar garðvörur í um 15 ár
og á þessum tíma hefur
hann sérhæft sig í þeim þáttum
sem varða tjarnargerð, gosbrunna og
tengda vöru. Gífurlegur áhugi
hans á vatni og búnaði því tengdu
varð svo kveikjan að stofnun fyrirtækisins ásamt því að vöntun
var á markaðnum á fyrirtæki
sem er sérhæft á þessum
sviði.
Meðeigandi Svavars í fyrirtækinu
er Hildur Sif Hreinsdóttir.
Frá stofnun hefur fyrirtækið
einungis verið með vefsíðu þar
sem fólk hefur getað skoðað vöruúrvalið og
síðan pantað vöruna í gegnum
internetið eða símleiðis.
Fyrirtækið hefur ætið verið með helstu
vöruliði á lager, en þær
vörur sem hefur þurft að sérpanta
hafa tekið skamman tíma í flutningi.
Í mars 2007 opnuðum við verslun og sýningarsal að Langholtsvegi 109. Þar gat fólk komið við og séð hluta af vörunum í gangi til að gefa gleggri mynd. Verslunin var samt fremur hulin og oftar en ekki átti fólk í vandræðum með að finna út hvar við værum.
Í mai 2009 þá fluttum við okkur í stærri verslun að Askalind 2 í Kópavogi. En vegna samdráttar í þjóðfélaginu þá urðum við að loka versluninni í október 2010. Nú munum við einbeita okkur að sérpöntunum á gosbrunnavörum og sölu á garðljósum. Samhliða flutningnum þá tók nýtt fyrirtæki í okkar eigu við rekstri vefsíðunnar.
Við höfum því flutt okkur um set og fært okkur í minna húsnæði að Malarhöfða 8, þar sem við erum með ljósin uppsett og til sýnis. Þaðan munum við afgreiða út vörur og senda. Opnunartími á lager verður samkvæmt samkomulagi, vinsamlegast hafið samband við okkur í síma 695-4220 til að fá frekari upplýsingar. |