Það að útbúa
sína eigin tjörn eða vatnasvæði
er mun auðveldara en margur heldur. Það er ágætt
að rissa upp á blað allar þær
hugmyndir sem upp koma og reyna að gera
sér grein fyrir því hvað verið er
að leita eftir.
Í byrjun þarf að velja vel
staðsetninguna. Ekki er æskilegt
að hafa tjörn undir trjám, þar
sem tjörnin fyllist af laufi á haustin.
Eins er betra að staðsetja hana í sem
mestu skjóli frá sólinni
til að minnka grænþörungamyndun á sólríkum
sumardegi.
Stundum getur líka verið kostur
að hafa tjörnina eða vatnasvæðið sjálft
falið. Þá er gott að nota
niðurgrafin vatnsforðabúr sem
hægt er að hylja með skrautmöl
eða steinum. Sum þessara vatnsforðabúra þola þyngd
upp að allt að þúsund
kg.
Ef til stendur að setja stóra steina í vatnasvæðið þá þarf
að passa upp á það að vera
með gott undirlag. Best er að koma
dúk undir steininn til að allt vatn
sem flæðir yfir hann fari örugglega
aftur niður í tjörnina, annars
er hætt við því að tjörnin
tæmi sig á skömmum tíma
og þá er mögulegt að dælubúnaður
gefi sig.
Það þarf að gera ráð fyrir
góðu pússningasandslagi undir
dúkinn þar sem steinninn á að vera
og þá eins að vera með filtdúk,
teppi , kókosmottu eða annað mjúkt
undirlag á milli dúks og steins.
Ekki er óalgengt að örlítil
hreyfing verði á svæðinu
fyrst til að byrja með og þá þarf
að koma í veg fyrir að þungir
steinar setji gat á dúkinn. Eins
er hætta á því að steinninn
nuddist við dúkinn þegar verið er
að koma honum á sinn stað.
Þegar verið er að nota nátturulega
klöpp í landslaginu eða stein
sem er fyrir á staðnum og gert er
ráð fyrir að aðeins hluti
af steininum verði notaður er hægt
að festa dúkinn við steininn. Það er
vandasamt verk til að það sé ekki
leki. Með réttum aðferðum
er það þó gerlegt.
Oft geta tilbúnar lækjareiningar
verið kjörinn valkostur fyrir þá sem ætla
að útbúa læk. Kosturinn
við tilbúnar einingar liggur í því að það er öruggt
að vatnið haldi sér innan farvegsinns
og það er hægt að pússla þeim
samann á marga vegu. Eins eru þær
frostþolnar og þær þola
vel veðrun. Einingarnar frá Rockways
sem við bjóðum eru búnar
til úr glertrefjum sem aðlagast
náttúrulegu umhverfi mjög
vel, á skömmum tíma mun
mosi og annar gróður ná fótfestu á einingunni
sem gerir hana mun raunverulegri með tímanum.
Það er í raun allt hægt
að gera varðandi vatnasvæði
eða hreyfingu vatns. Þið getið haft
samband við okkur og við getum aðstoðað við að koma
ykkar hugmynd í framkvæmd eða
gefið ykkjur tilboð í þann
búnað sem þarf.
Við erum með heildarlausnir á öllum þeim þáttum
sem varða tjarnargerð, gosbrunna eða
vatnsflæði, ásamt tengdum
vörum eins og lýsingu, garðskrauti
og styttum.
Aftur til baka
|