Val á dælu
fer allt eftir því hvað henni
er ætlað að gera.
Dreifispíssar eða önnur hreyfing
vatns “uppávið”
Ef það er einungis hugsunin að vera
með smá “uppávið” hreyfingu á vatninu
, einhvern dreyfispíss, skál eða
froðuspíss þá dugar að hafa
litla dælu. Þá er mögulegt
að velja Oase
Aquarius Start dælur
ef verið er að leita eftir ódýrri
einfaldri dælu eða Oase
PRO Nautilus ef óskað er eftir vandaðri dælu.
Með Oase dælum fylgja mismunandi spíssar. Hægt
er að fá auka spíssa á flestar
Oase dælur.
Vatn í gegnum stein.
Ef verið er að leita eftir því að láta
dæluna dæla í gegnum stóran stein
er notast við flæðisdælur.
Til að finna út hvernig dælu þú þarft,
er notast við þessa þumalputtareglu:
fyrir hvern cm af
yfirborði steins sem áætlað er
að vatnið flæði yfir þarf
40 litra vatnsflæði á klukkustund. Er þá miðað við að steinninn
sé ekki ofar en 50 cm frá vatnsyfirborði
og nógu breiðar lagnir notaðar
t.d. 3/4" eða 1" slöngur.
Dæmi; steinn er 60 cm í þvermál
og vatnið á að flæða
yfir hann allan í miðri tjörn. Þá þarf
að vera með dælu sem dælir
2400 lítrum af vatni á klukkustund.
Þær dælur sem henta eru Oase
PRO Neptun eða stærri Oase Aquarius
Start dælurnar, ef vatnsflæðið er
lítið.
Lækur eða foss.
Þegar lækur er gerður þarf
mun öflugri dælur en fyrir hina
tvo valkostina. Þá þarf
að vera með dælur sem gefa
mikið vatnsflæði. Þær
dælur sem henta best í mikið vatnsflæði
eru Oase Aquamax
Start eða Oase Aquamax Eco Pro. Pro dælurnar eru frostþolnar, þær
geta og þola að botnfrjósa í tjörnum,
og þær eru með tvö vatnsinntök. Það getur
verið kostur ef það á að ná meira
vatnssvæði inn í dæluna
frá fjarlægari hluta tjarnarinnar. Það eykur
súrefni í tjörninni sem þá um
leið minkar líkur á grænþörungum. Æskilegt
er að staðsetja lækjardælu á móti
staðnum sem lækurinn rennur í tjörnina.
Til að velja rétta lækjardælu þarf
að taka inn í reikninginn áætlaða
breidd lækjar, hæð og magn
vatns og það þarf líka
að gera ráð fyrir örlitlu
viðnámi í slöngunum þegar
dælan er valin.
Nota má eftirfarandi þumalputtareglur:
Áætluð breidd lækjar
(cm) x 1,5/lítrar á mínútu
= Flæðisþörf lítrar á mínútu
við upphaf lækjar!
Dæmi; lækur á að vera
40 cm breiður og 3 m langur. Hæðarmunurinn
er 1 m og notast er við 1 1/4" slöngu.
40 x 1,5 = 60 lítrar á mínútu
x 60 = 3600 l/klst. + áætlað slönguviðnám
= 4500-5000 lítrar á klukkustund.
Dæla sem yrði fyrir valinu yrði þá Aquamax
5500 eða Aquamax Eco 6000. Alltaf betra
að taka of stóra dælu en á hinn
vegnn, það má alltaf minka
flæðið en það er ekki
hægt að auka flæðið umfram það sem
dælan afkastar.
Styttur eða spýtifígúrur.
Fyrir einn litinn spýti, eða litla
styttu sem sprænir ofaní tjörn,
nægir að vera með litla dælu.
Þumalputtareglan er; fyrir hvern
spýtir sem er við vatnsbakkann þarf
dælu sem dælir 600 lítra á klukkustund.
Dæmi; á bakkanum stendur
einn froskur og einn fiskur. Þá þarf
dælu sem dælir 1200 lítrum á klukkustund.
Ef verið er að leita eftir flæði í gegnum
styttu, er hægt að notast við litlar
flæðisdælur. Þá verður
að hafa í huga hvað dælan þarf
að geta lyft vatninu hátt. Þá dugar
að dælan nái að lyfta
uppí tiltekina hæð.
Dæmi; steinbrunnur er með vatnsúrtaki í 80
cm hæð. Vatnið lekur þaðan
niður í skál þar sem
dælan er staðsett. Þá passar
að vera með Neptun 1000 dælu því hún
er með hámarks lyftigetu uppá 1,5
m og 600 lítra vatnsflæði á klukkustund í 80cm
hæð.
Hentugar dælur fyrir minni verkefni
eru smærri Oase Neptun dælurnar
eða Seliger smádælur fyrir
innigosbrunna.
Aftur til baka |