Gosbrunnar.is - allt fyrir tjarnargerð, gosbrunna og vatnsflæði.

Malar

Gosbrunnur
Vatnsflæði

Hvernig skoða ég síðuna?

Almennar upplýsingar um tjarnargerð

Hvernig nota ég tjarnardúk?

Hvernig dælu?

Hvernig virka hreinsifilter?

Lágspennt garðljós

Um skrautsteina

Um innigosbrunna

Hvernig skoða ég vefsíðuna?

Vefsíðan gosbrunnar.is er byggð upp á sem einfaldastan hátt til að notandinn geti auðveldlega skoðað sig um á síðunni.

En það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga þegar farið er um síðuna.

Á forsíðunni er hægt að sjá alla vöruliði fyrirtækisins og með því að smella á viðkomandi mynd eða með því að fara létt yfir textann á hnöppunum á vinstri hlið þá verður sú vara uppljómuð á myndasvæðinu. Með því að smella á myndina kemst þú á vörusíðu þess vöruflokks sem var valinn. Þar er aftur hægt að þrengja skoðunarsvæðið með því að smella á myndina af vöru eða tengil fyrir neðan.

Þegar inn á vörusíðuna sjálfa er komið þá eru þar allar helstu upplýsingar um vöruna og með því að smella á myndina af vörunni þá yfirleitt er hægt að sjá stærri mynd af vörunni í nýjum glugga.
Neðst á hverri vörusíðu fyrir sig er hnappur sem heitir "Nánar um....". Með því að smella á þann hnapp þá kemur upp annar sjálfstæður gluggi með öllum helstu upplýsingum um vöruna og fylgihluti hennar.
Það er aftur hægt að stækka eða minka sjálfstæða glugga að vild með því að draga hornin til.

Ef óskað er eftir því að fá frekari upplýsingar um vöru eða áhugi er fyrir því að panta ákveðna vöru þá er hnappur, " Fá upplýsingar - panta", sem er smellt á og þá kemur upp svæði sem er fyllt út eins og við á og það sent.

Ýmislegt á síðunni er ennþá í vinnslu, en það mun verða uppfært og endurbætt á næstunni.

Við vonum að þú hafir ánægju og gagn af því að ferðast um síðuna.

 

Aftur til baka

Smellið hér til að sjá vörurnar
Gosbrunnar - Lager og vöruafgreiðsla Malarhöfða 8 - sími 695 4220 - gosbrunnar@gosbrunnar.is