Gosbrunnar.is - allt fyrir tjarnargerð, gosbrunna og vatnsflæði.

Malar

Gosbrunnur
Vatnsflæði

Hvernig skoða ég síðuna?

Almennar upplýsingar um tjarnargerð

Hvernig nota ég tjarnardúk?

Hvernig dælu?

Hvernig virka hreinsifilter?

Lágspennt garðljós

Um skrautsteina

Um innigosbrunna

Um innigosbrunna.

Róandi vatnshljóð og rakatæki.
Vatn er skemmtilegt fyrirbæri. Hreyfing vatns hefur öldum saman verið einn stærsti þátturinn í slökun og ræktun mannsandans, enda er vatn eitt af undirstöðum Feng Shui hugmyndafræðinnar sem gengur út á jafnvægi og afslappað umhverfi. Það er því löngu vitað að hljóð frá örlitlu vatnsgutli hafi róandi áhrif og með litlum innigobrunn er nú einfalt að koma því við í heimahúsum. Innigosbrunnar hafa einnig annan góðan kost að þeir eru líka öflugt rakatæki. Hreyfingin á vatninu eykur rakauppsöfnunina í andrúmsloftinu. Það er mjög mikilvægt að hafa rakastigið í lagi, sérstaklega í svefnherbergjum þar sem það getur haft bein áhrif á svefn fólks. Innigosbrunnar gera þetta hvorutveggja, að róa mannsandann um leið og þeir bæta rakastigið í sínu umhverfi.

Löngum hefur verið talið að hljóð frá rennandi læk eða á sé kraftmikð endurnæringarafl, hvort heldur sem er fyrir líkama eða sál. Allt frá tímum Rómverja hafa gosbrunnar verið settir upp í hýbýlum manna þeim til yndisauka og fegrunar. Innigosbrunnar eru fáanlegir í fjölmörgum útfærslum og bjóðum við upp á mjög breitt úrval af innigosbrunnum. Þar má finna hefðbundna Feng Shui innigosbrunna, þar sem náttúrulegir begkristallar, saltsteinar og kalksteinar auka enn frekar á slökunar-, og að mati sumra, lækningarmátt vatnsins. Fyrirtækið er með úrval gosbrunna af öllum stærðum og gerðum og má þar meðal annars nefna keramikbrunna, steinbrunna úr náttúrulegum flögusteinum, koparbrunna og glerskálar með þokueiningu, sem er um leið vatnsjónunartæki.

Innigosbrunnar geta haft góð á viðskiptavini verslana eða þjónustufyrirtækja og oftar en ekki getur örlitið vatnsgutl haft þau áhrif að viðkomandi finnst hann vera í rólegu og notalegu umhverfi sem eykur jákvæð áhrif hans og góða tilfinningu fyrir fyrirtækinu.
Það sama má segja um biðstofur lækna, tannlækna eða sálfræðinga svo dæmi séu tekin.


Það eru í raun óendanlegir möguleikar á því hvernig hægt er að nota vatn sér og öðrum til yndisauka og fólk ætti jafnvel að nýta sköpunarhæfileika sína til að útbúa sína eigin vatnsparadís á sínum uppáhaldstað á heimilinu eða í garðinum.

 

Aftur til baka

Smellið hér til að sjá vörurnar
Gosbrunnar - Lager og vöruafgreiðsla Malarhöfða 8 - sími 695 4220 - gosbrunnar@gosbrunnar.is