Fátt
setur eins mikinn punkt yfir fallegan garð
eða svæði eins og góð lýsing. Gosbrunnar.is
bjóða uppá einföld og vönduð ljós á lágri 12v
spennu sem eru samtengjanleg frá Hollenska
fyrirtækinu Techmar.
Ljósin eru þannig útbúin að
það er einn straumbreytir, sem er með 230v
í 12v spennu, sem öll ljósin eru tengd við.
Stærð straumbreytisins fer eftir fjölda ljósa
og orkuþörf. Það eru ýmist halogenperur,
litlar glóperur eða LED perur í ljósunum.
Fyrir 12v ljós þarf ekki að leggja sérstaklega
raflagnir þar sem auðvelt er að ganga frá lögnum
undir jarðveg eða meðfram stéttum og pöllum.
Einn mesti kosturinn við þessi
ljós er að það er hægt að byrja smátt en bæta
svo við inn á sömu lögn eftir því sem óskað
er. Það er líka hægt að vera bæði með hefðbundna
garðlýsingu og vatnalýsingu á sama straumbreytnum
sem einfaldar allar tengingar. Við ljósin má
jafnvel tengja ljósnema sem kveikir og slekkur
á ljósunum eftir birtu.
Ljósin frá Techmar koma í þremur tegundaflokkum:
- TEGUND A: Stök ljós. Þessi ljós koma með 2m kapli frá ljósi og gert er ráð fyrir því að þau séu samtengd við önnur ljós eftir því sem við á og þarf þá að kaupa straumbreytir og lagnir sér. Stærð straumbreytis fer eftir fjölda ljósa og perustærð þeirra ljósa sem áætlað er að tengja samann. Dæmi: áætlað er að vera með 3 ljós í beði og tvo kastara til að lýsa upp stein og einn kastara til að lýsa upp foss í tjörn. Beðljósin eru með 20w peru, eða samtals 60w. Kastararnir eru með 20w peru, eða samtals 60w. Alls eru þetta þá 120w. Í þessu tilfelli þyrfti að kaupa 150w straumbreyti. Þarna er þá líka pláss fyrir nokkur ljós seinna ef óskað er eftir því. Að lokum þyrfti að kaupa 15m straumkapal, sem kemur með 6 inntökum fyrir ljós.
- TEGUND B: Stækkanleg sett. Þessi sett koma með ákveðnum fjölda ljósa, straumbreyti og köplum. Við þessi sett er hægt að bæta við ljósum eftir því sem straumbreytirinn sem fylgir getur tekið við.
- TEGUND C: Heildarsett. Þessi sett koma með öllum þeim fylgihlutum sem þarf. Þau eru þá með starumbreyti, snúrum og fjöltengjum eftir því sem við á. Þessi sett er ekki hægt að stækka nema keyptur sé stærri straumbreytir sem tekur fleiri ljós.
ATH! Það er alltaf möguleiki á því að breyta stærð perana sem fylgja ljósunum. T.d koma flest ál og stálljós með 20w perum. Það er hægt að minnka niður í 10w perur, en með því er minna álag á straumbreytinn og hægt er að koma á hann fleiri ljósum. Við þetta verður lýsingin daufari. Í sumum tilfellum er líka hægt að skipta út Halogen perum og setja í þeirra stað LED perur, sem taka mun minni straum en eru með allt öðruvísi lýsingu. Allar aukaperur eru til hjá okkur.
Öll ljós, straumbreytar og snúrur
eru með skrúfuðum pinnatengjum sem gera þau
örugg og það eru líka minni líkur á spanskgrænu í tengingum sem geta orsakað sambandsleysi. Þegar bætt er við nýjum
ljósum við þá er mögulegt að fá ýmiss fjöltengi
og samtengi til að auðvelda tenginguna við
þær lagnir sem eru til staðar.
Það er hægt að tengja 12v lýsinguna
frá Techmar við lágspenntar 12v
dælur frá Seliger
eða steinbrunna frá AC Pots. Þetta býður upp
á ýmsa möguleika fyrir þá sem eru t.d. með
sólarorkustöðvar í sumarbústöðum.
Aftur til baka
|